Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að tillaga Einars Sigþórssonar, f.h. umhverfis- og mannvirkjsviðs og skipulagssviðs Akureyrarbæjar, breytingu á deiliskipulagi sem nær til svæðis frá Kaupvangsstræti suður að Drottningarbraut verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þetta var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum á bæjarstjórnarfundi 20. janúar.
Unnið hefur verið að endurhönnun götunnar þar sem miðað hefur við að óvarðir vegfarendur séu settir í forgang og gatan gerð að vistgötu. Breytingin er gerð til að koma til móts við fyrirhugaða fjölgun ferðamanna á svæðinu í tengslum við umfangsmikla uppbyggingu hótelrýma í Hafnarstræti auk þess sem að í aðalskipulagi er gert ráð fyrir stofnstíg gangandi og hjólandi.
Skáld Hótel mun opna 1. maí og stefnt er að því að hafa fráganginn fyrir framan hótelið
tilbúinn á þeim tíma. Mikil áhersla er lögð í að gatan verði falleg með gróðri ásamt því að
torg verður sett norðan við Skáld hótel. Einnig verður nokkurskonar torg fyrir neðan Sigurhæðir.


COMMENTS