Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður bæjarráðs og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, hafa ákveðið að styðja hvort annað í aðdraganda röðunarfundar fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri. Áður höfðu þau bæði gefið út að þau myndu sækjast eftir oddvitasæti flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor en nú mun Heimir sækjast eftir 2. sæti listans.
Heimir mun styðja framboð Berglindar til oddvitasætis og Berglind mun styðja Heimi í 2. sæti listans. Í tilkynningu þeirra á vef Sjálstæðisflokksins á Akureyri segir að ákvörðunin sé ekki tekin af léttúð heldur að hún byggi á sameiginlegri sýn á það sem skiptir Akureyri mestu máli.
„Undanfarna mánuði hafa átt sér stað mikilvægar umræður innan Sjálfstæðisflokksins á Akureyri um framtíðina, næstu skref og hvernig best sé að mæta kjósendum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026. Í þeim samtölum hefur eitt verið okkur sérstaklega hugleikið: að sterkasta leiðin fram á við byggist á samstöðu, gagnkvæmu trausti og öflugri liðsheild,“ segir í tilkynningu þeirra.
„Á síðasta kjörtímabili höfum við séð hversu mikilvægt það er að vinna saman að lausnum sem skila raunverulegum árangri fyrir bæjarbúa. Ábyrg fjármálastjórn, skýr forgangsröðun og lausnamiðuð nálgun hafa verið leiðarljós í störfum Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn. Við finnum sterkt að flokkurinn á áfram erindi við kjósendur, enda eru fjölmörg verkefni fram undan sem kalla á festu, þekkingu og framtíðarsýn.“
Þau segja að með því að stilla saman strengi sýna vilji þau leggja grunn að sterkum lista, öflugri baráttu og áframhaldandi framförum fyrir Akureyri og að sú sátt og samvinna sem hafi skapast sé að þeirra mati skýr yfirlýsing um að hagsmunir bæjarbýa séu settir í fyrsta sæti.
„Við trúum bæði á gildi liðsheildar. Enginn einn einstaklingur er stærri en verkefnið eða flokkurinn sjálfur. Þvert á móti er það samspil fólks með ólíka reynslu, styrkleika og bakgrunn sem skapar sterkan heildarkraft. Endurnýjun og reynsla þurfa að fara hönd í hönd; þar liggur styrkurinn. Þegar traust ríkir og teymisvinna er höfð að leiðarljósi verða ákvarðanir betri og niðurstöðurnar skila sér til samfélagsins.“
Röðunarfundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fer fram 7. febrúar næstkomandi.


COMMENTS