Verkefnið Hreyfum okkur á Sjúkrahúsinu á Akureyri, SAk, sem miðar að því að hvetja sjúklinga til aukinnar hreyfingar meðan á innlögn stendur, er þegar farið að skila mælanlegum árangri. Verkefnið hófst í september 2025 og er unnið af sjúkraþjálfurum á SAk. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk.
Ný könnun SAk sýnir að fleiri sjúklingar klæðast nú eigin fötum yfir daginn og notkun á hreyfihornum deildanna hefur aukist, sem bendir til jákvæðrar þróunar í átt að meiri virkni og sjálfstæði sjúklinga.
„Þetta eru mjög hvetjandi niðurstöður sem sýna okkur að einfaldar aðgerðir og hvatning getur haft raunveruleg áhrif,“ segir Ragnhildur Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálfari á SAk.
Næstu skref í verkefninu snúast fyrst og fremst að því að virkja fleiri fagstéttir, fylgjast með þróuninni og fjölga áminningum með sýnilegum hætti bæði fyrir starfsfólk, sem og sjúklinga og aðstandendur þeirra. Fjölga á veggspjöldum og plaggötum og minna á verkefnið á upplýsingaskjáum sjúkrahússins
„Hreyfing á meðan á innlögn stendur er sameiginlegt verkefni okkar allra. Með auknum sýnileika og einföldum verkfærum getum við enn frekar stutt við bata, líðan og sjálfstæði sjúklinga,“ segir Ragnhildur á heimasíðu SAk.


COMMENTS