Stefanía Daney Guðmundsdóttir er íþróttakona UFA árið 2025 og Baldvin Þór Magnússon er íþróttakarl UFA árið 2025. Þau eru bæði tilnefnd til Íþróttafólks Akureyrar árið 2025.
Á vef UFA segir eftirfarandi um Stefaníu:
Stefanía Daney er afrekskona í langstökki og margfaldur norðurlandameistari í frjálsum og hefur komist á öll Evrópumeistaramót og Heimsmeistaramót í frjálsíþróttakeppnum fatlaðra síðustu 8 ár. Það er mikill heiður fyrir Íþróttalíf á Akureyri að eiga þessa stjörnu innan sinna raða sem keppir á Evrópu og Heimsmeistarmótum á hverju ári. Eina mótið sem Stefanía hefur ekki keppt á eru Paralympics sem stefnan er sett á 2028 í Los Angeles. Stefanía er einnig virk að innan starfs UFA að miðla til yngri iðkenda og hefur sínt að stóru sigrarnir felast í því að sigrast á sinni fötlun. UFA er mjög stolt að tilnefna jafn öfluga íþróttakonu til íþróttakonu Akureyrar
Á vef UFA segir eftirfarandi um Baldvin:
Baldvin byrjaði árið 2025 á því að setja Íslandsmet innahús í 1500m hlaupi í beinni útsendingu á Reykjavík International Games. Tími hans var 3;39,67 mín. Baldvin keppti einnig á Evrópumeistaramótinu innahúss og var fyrirlið íslenska landsliðsins sem sigraði 3 deild á evrópubikarnum sem haldin var í Maribor í Slóveníu. Baldvin er einn allra sterkasti millivegalengda- og langhlaupari sem Ísland hefur átt. Hann hefur náð framúrskarandi árangri á undanförnum árum í hlaupum frá 1500 m og upp í 10 km hlaup. Hann á sem stendur sautján virk Íslandsmet, sex í yngri aldursflokkum og ellefu í flokki fullorðinna.
Helstu afrek Baldvins síðustu 12 mánuði:
- Íslandsmet í 1500 innanhúss 3:39,67
- Íslandsmet í 3000 innanhúss 7:39,94
- Íslandsmet í 10 km götuhlaupi 28:37
- Norðurlandameistarai í 3000 innanhúss
- Íslandsmeistari í 1500 utanhúss
- Sigur og brautarmet í 10 km í Reykjavíkurmaraþoni
Það er UFA mikill heiður að tilnefna Baldvin til Íþróttakarls Akureyrar.


COMMENTS