Knattspyrnukonan Sandra María Jessen og hlauparinn Baldvin Þór Magnússon eru Íþróttafólk Akureyrar árið 2025. Kjöri íþróttafólks Akureyrar 2025 var lýst á Íþróttahátíð Akureyrar á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi.
13 af 20 aðildarfélögum ÍBA tilnefndu alls 46 íþróttamenn úr sínum röðum, 20 íþróttakonur og 26 íþróttakarla. Úr þeim tilnefningum var svo kosið á milli tíu karla og tíu kvenna sem stjórn Afrekssjóðs hafði stillt upp.
Þetta er þriðja árið í röð sem Sandra María hlýtur titilinn. Baldvin Þór var einnig valinn Íþróttakarl Akureyrar árið 2023.
Blakkonan Julia Bonet Carreras var í öðru sæti í kjöri um Íþróttakonu Akureyrar 2025 og hjólreiðakonan Hafdís Sigurðardóttir í því þriðja. Knattspyrnumaðurinn Hallgrímur Mar Bergmann varð annar í kjöri á Íþróttakarli Akureyrar 2025 og í þriðja sæti varð kraftlyftingamaðurinn Alex Cambray Orrason.
Baldvin Þór Magnússon er íþróttakarl Akureyrar í annað sinn. Baldvin Þór er fæddur á Akureyri en flutti ungur til Bretlands með foreldrum sínum. Hann fór á íþróttastyrk til Bandaríkjanna í háskólanám og æfði þar og keppti í fimm ár. Hann hefur nú snúið aftur til Bretlands og æfir þar með sterkum hópi hlaupara. Baldvin heldur góðum tengslum við heimalandið og kemur reglulega heim og tekur þátt í mótum, nú síðast á RIG síðastliðna helgi. Baldvin er einn allra sterkasti millivegalengda- og langhlaupari sem Ísland hefur átt. Hann hefur náð framúrskarandi árangri á undanförnum árum í hlaupum frá 1500 m og upp í 10 km hlaup. Hann á sem stendur sautján virk Íslandsmet, sex í yngri aldursflokkum og ellefu í flokki fullorðinna. Helsta íþróttaafrek hans á árinu 2025 voru Íslandsmet í 1500 m innanhúss 3:39,67, Íslandsmet í 3000 m innanhúss 7:39,94, Íslandsmet í 10 km götuhlaupi 28:37, Norðurlandameistari í 3000 m innanhúss, Íslandsmeistari í 1500 m utanhúss, sigur og brautarmet í 10 km í Reykjavíkurmaraþoni.
Sandra María Jessen er íþróttakona Akureyrar í þriðja sinn. Sandra María var lykilleikmaður í liði Þórs/KA í Bestu deildinni í sumar, fyrirliði liðsins og leiddi liðið í markaskorun. Hún sýndi ítrekað hve mikilvæg hún var liði sínu og í raun ein besta knattspyrnukona sem spilaði í Bestu deildinni á árinu. Sandra María spilaði samtals 21 leik fyrir Þór/KA í Íslandsmóti, bikarkeppni og deildarbikar árið 2025 og skoraði 17 mörk. Þar af voru 14 leikir og tíu mörk í Bestu deildinni. Sandra María spilaði 12 landsleiki á árinu, þar af var hún í byrjunarliðinu í átta leikjum. Hún náði þeim áfanga á árinu að spila sinn 50. landsleik fyrir Íslands hönd og var ein af bestu leikmönnum íslenska landsliðsins á lokamóti EM í sumar. Frammistaðan vakti athygli og varð Sandra eftirsótt af erlendum liðum í kjölfarið. Í lok ágúst hafði Sandra vistaskipti til þýska úrvalsdeildarfélagsins FC Köln þar sem hún hefur farið á kostum og er lang markahæst í sínu liði og meðal markahæstu kvenna í þýsku úrvalsdeildinni það sem af er yfirstandandi keppnistímabili.
Þetta er í 47. sinn sem Íþróttamaður Akureyrar er kjörinn en það var fyrst gert árið 1979 en í tíunda sinn þar sem bæði íþróttakona- og íþróttakarl Akureyrar eru valin og heiðruð. Alls hefur 31 einstaklingur hlotið þetta sæmdarheiti, oftast allra júdókappinn Vernharð Þorleifsson, sjö sinnum alls en sú kona sem hefur oftast hlotið nafnbótina er sundkonan Bryndís Rún Hansen, alls fjórum sinnum.
Íþróttamenn Akureyrar 1979-2025:
1979 Gunnar Gíslason, handknattleikur og knattspyrna
1980 Haraldur Ólafsson, lyftingar
1981 Haraldur Ólafsson, lyftingar
1982 Nanna Leifsdóttir, skíði
1983 Nanna Leifsdóttir, skíði
1984 Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1985 Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1986 Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1987 Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1988 Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1989 Þorvaldur Örlygsson, knattspyrna
1990 Valdemar Valdemarsson, skíði
1991 Rut Sverrisdóttir, sund
1992 Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1993 Vernharð Þorleifsson, júdó
1994 Vernharð Þorleifsson, júdó
1995 Vernharð Þorleifsson, júdó
1996 Vernharð Þorleifsson, júdó
1997 Ómar Halldórsson, golf
1998 Vernharð Þorleifsson, júdó
1999 Vernharð Þorleifsson, júdó
2000 Ingvar Karl Hermannsson, golf
2001 Vernharð Þorleifsson, júdó
2002 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2003 Andreas Stelmokas, handknattleikur
2004 Rut Sigurðardóttir, Tae Kwon Do
2005 Guðlaugur Már Halldórsson, akstursíþróttir
2006 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2007 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2008 Rakel Hönnudóttir, fótbolti
2009 Bryndís Rún Hansen, sund
2010 Bryndís Rún Hansen, sund
2011 Bryndís Rún Hansen, sund
2012 Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrna
2013 Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2014 Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2015 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016 Bryndís Rún Hansen, sund
2017 Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur
2017 Stephany Mayor, knattspyrna
2018 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2018 Hulda B. Waage, kraflyftingar
2019 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2019 Aldís Kara Bergsdóttir listhlaup
2020 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2020 Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup
2021 Brynjar Ingi Bjarnason, knattspyrna
2021 Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup
2022 Nökkvi Þeyr Þórisson, knattspyrna
2022 Hafdís Sigurðardóttir, hjólreiðar
2023 Baldvin Þór Magnússon, hlaup
2023 Sandra María Jessen, knattspyrna
2024 Alex Cambray Orrason, kraftlyftingar
2024 Sandra María Jessen, knattspyrna
2025 Balvin Þór Magnússon, hlaup
2025 Sandra María Jessen, knattspyrna


COMMENTS