Skráning á pílumótið SjallyPally 2026 opnaði í gær og gekk vonum framar samkvæmt mótshöldurum. Alls bárust 380 skráningar og fylltist mótið á 65 sekúndum. Mótsnefnd skoðar nú mögulega stækkun á mótinu en um 148 karlar og 8 konur eru nú á biðlista.
Akureyri Open eða SjallyPally fer fram í Sjallanum 10. til 11. apríl næstkomandi. Þetta verður í þriðja skiptið sem Akureyri Open verður haldið í Sjallanum. Frábær stemning hefur myndast fyrir mótinu enda er öllu til tjaldað.
Mótið í ár verður hið glæsilegasta líkt og síðustu ár. Frægasti dómari og kallari í pílukasti, Russ Bray, verður á staðnum líkt og á síðasta ári og mun sjá um að kalla úrslitakvöldið. Honum til halds og traust verður John McDonald.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins með því að smella hér.


COMMENTS