Árangur af tæplega þriggja áratuga starfi Sjávarútvegsskóla GRÓ verður til umfjöllunar á opnum viðburði sem haldinn verður í Háskólanum á Akureyri 4. febrúar nk. kl. 10-11.15. Viðburðurinn, sem ber yfirskriftina „Frá þekkingu til áhrifa: mannauðsuppbygging til sjálfbærrar þróunar í sjávarútvegi, er haldinn í samstarfi utanríkisráðuneytisins, GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, Sjávarútvegsskóla GRÓ, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri.
Á viðburðinum munu nemendur sjálfir segja frá því hvernig námið hefur nýst þeim til að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og uppbyggingu fiskeldis. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mun flytja þar ávarp og Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, bjóða gesti velkomna.
Nemendur eru allir sérfræðingar og tilnefndir til þátttöku vegna mikilvægra starfa sinna við að stuðla að sjálfbærum sjávarútvegi heima fyrir, en þeir starfa hjá samstarfsstofnunum GRÓ. Alls hafa 512 nemendur útskrifast frá Sjávarútvegsskóla GRÓ, frá 68 löndum, frá stofnun skólans árið 1997.
Sjávarútvegsskólinn er einn fjögurra skóla sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, en í gegnum þá er íslenskri sérþekkingu sem nýtist þróunarlöndunum til að stuðla að sjálfbærri þróun komið á framfæri. Hinir skólarnir starfa á sviði jafnréttis, jarðhita og landgræðslu. Skólarnir hafa um áratugabil verið ein af lykilstoðum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.
Viðburðurinn er annar fjögurra viðburða þar sem fjallað er um áhrifin af starfi skólanna. Fyrsti viðburðurinn, um starfsemi Jarðhitaskóla GRÓ, fór fram þann 5. nóvember sl. í Háskóla Íslands. Næstu tveir viðburðir verða um Jafnréttisskóla GRÓ þann 3. mars og um Landgræðsluskóla GRÓ þann 7. maí, en þeir munu báðir fara fram í Háskóla Íslands.
Viðburðurinn fer fram í sal M101 í Háskólanum á Akureyri, Norðurslóð 2. Hann fer fram á ensku og verður einnig í streymi. Upptakan verður aðgengileg eftir viðburðinn.
Hér eru hlekkir tengdir viðburðinum: Facebook viðburður | Skráning á viðburð (fyrir þau sem hyggjast mæta í raunheimum) | Streymi og upptaka


COMMENTS