„Nú á ég tvö heimili, annars vegar á Siglufirði og hins vegar á Akureyri“Mynd: VMA.is

„Nú á ég tvö heimili, annars vegar á Siglufirði og hins vegar á Akureyri“

Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi alþingismaður og frumkvöðull, hefur á síðustu árum snúið sér í auknum mæli að verklegum verkefnum, námi og nýsköpun eftir að hann flutti aftur norður á æskuslóðir sínar. Hann er til viðtals á vef Verkmenntaskólans á Akureyri í dag.

„Það hefur alltaf verið smá iðnaðarmannataug í mér. Framan af var ég ekki alveg viss um hvort ég ætlaði að fara í háskóla- eða iðnnám. Ég vann í vélsmiðjunni Fjarðarstál í Hafnarfirði í tvö ár og á sumrin var ég í fjölbreyttum störfum, m.a. sem handlangari eða til sjós. Eftir menntaskóla endaði ég þó á því að fara í Háskóla Íslands og útskrifaðist 1998 með BA-próf sagnfræði sem aðalgrein og íslensku sem aukagrein.

Í gegnum tíðina hef ég ýmislegt brasað í smíðum, t.d. í sumarbústað fjölskyldunnar í Þjórsárdal og þar á raunar öll ættin bústaði. Því hefur verið mikið smíðað í Þjórsárdalnum. Ég hef haft ánægju af því að grípa í smíðarnar en fundið að mig hefur sárvantað meiri kunnáttu til þess að geta tekist einn á við hlutina, án þess að njóta tilsagnar annarra.

Þegar sá möguleiki kom upp að fara í þetta nám hér í VMA ákvað ég að sækja um og sé sannarlega ekki eftir því, þetta hefur verið alveg frábært,“

segir Kolbeinn Óttarsson Proppé í samtali við vma.is. Hann sat um tíma á Alþingi og var þingmaður Vinstrihreyfingarinnar, græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi suður á árunum 2016 til 2021.

Eftir að hafa búið í mörg ár á höfuðborgarsvæðinu flutti Kolbeinn á fornar slóðir á Siglufirði fyrir um fimm árum, í kjölfarið á því að hann lét af þingmennsku. Kolbeinn á sterkar rætur á Dalvík og Siglufirði þar sem fjölskyldan bjó þegar hann var að vaxa úr grasi. Á Dalvík var Kolbeinn í sex ár en fjögur á Siglufirði.

„Ég hafði keypt mér litla íbúð á Siglufirði, í gamla Gagganum þar sem svefnherbergið er í gömlu dönskustofunni minni. Íbúðina hugsaði ég til skemmri dvalar á vetrum, t.d. vegna skíðaferða, og að skjótast norður á sumrin. En þegar breytingar urðu á mínum högum ákvað ég að taka skrefið og flytja alfarið norður enda hafði ég lofað mér því fyrir mörgum árum að ég skyldi búa aftur sem fullorðinn maður hér fyrir norðan.

Rætur mínar úr uppvextinum toguðu í mig og ég lét því slag standa. Til öryggis setti ég þó búslóðina mína í geymslu í níu mánuði fyrir sunnan en fljótlega komst ég að raun um að hér vildi ég vera.

Ég flutti norður án þess að vita hvað ég væri að fara að gera en hafði að leiðarljósi að ég myndi takast á við allt sem til mín kæmi með opnum og jákvæðum huga. Og það hefur heldur betur verið raunin,“

segir Kolbeinn og bætir við að nú eigi hann tvö heimili, annars vegar á Siglufirði og hins vegar með sambýliskonu sinni á Akureyri.

Allt viðtalið er hægt að lesa á heimasíðu Verkmenntaskólans VMA, hér.

COMMENTS