Tveir fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í einbýlishúsi

Tveir fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í einbýlishúsi

Eldur kom upp í einbýlishúsi við Hlíðarveg á Siglufirði síðdegis í gær. Þegar Slökkvilið Fjallabyggðar mætti á svæðið höfðu íbúar ná að slökkva eldinn en þörf var á reykræstingu í húsinu.

Að sögn slökkviliðsins sannaðist í þessu tilfelli hversu mikilvægt er að heimili séu búin reykskynjurum, slökkvitækjum og eldvarnarteppum, en búnaðurinn skipti sköpum við fyrstu viðbrögð og kom í veg fyrir að eldurinn næði frekari útbreiðslu.

Nokkurt tjón varð í húsinu vegna elds og reyks og tveir einstaklingar voru fluttir á slysadeild Heilbrigðisstofnunar Norðurlands vegna gruns um reykeitrun. Ekki liggur fyrir nánari vitneskja um líðan þeirra að svo stöddu.

Í tilkynningu á Facebook minnir Slökkvilið Fjallabyggðar íbúa á mikilvægi þess að yfirfara reglulega eldvarnabúnað á heimilum og ganga úr skugga um að hann sé í fullkomnu lagi.

COMMENTS