Aldrei hafa fleiri nemendur verið skráðir til náms við Menntaskólann á Tröllaskaga, skólinn er yfirfullur og ekki var hægt að taka við fleiri nemendum þrátt fyrir mikla eftirspurn. Nemendur á vorönn eru 599 talsins, flestir þeirra fjarnemar en þó með MTR sem heimaskóla. Þetta kemur fram á heimasíðu skólans.
Þar segir að starfsfólk skólans sé mjög ánægt með aðsóknina en vonist til aukinna fjárveitinga í framtíðinni svo skólinn geti brugðist við eftirspurninni og tekið við enn fleiri nemendum.
Þá segir einnig að gleðilegt sé að nokkuð hafi fjölgað í hópi staðnema. Flestir fjarnemar komi frá höfuðborgarsvæðinu og séu ungir að árum en séu þó fjölskrúðugur hópur.
„Margir þeirra vinna með námi, jafnvel í fullu starfi, sumir eru að byrja aftur eftir hlé frá námi, íþróttafólk sem stundar íþrótt sína erlendis eru huti fjarnema sem og fólk sem getur ekki sótt skóla vegna andlegra eða líkamlegra veikinda. Svo er alltaf hópur fjarnema sem á annan heimaskóla en sækir staka áfanga hjá okkur sem eru ekki í boði í þeirra skóla. En þó aðstæður og bakgrunnur sé mismunandi þá stefna allir að sama marki; að sækja sér menntun til að bæta framtíðarhorfur sínar og lífsgæði,“ segir á heimasíðu skólans.


COMMENTS