Laxdalshús til leigu

Laxdalshús til leigu

Akureyrarbær hefur auglýst Laxdalshús til leigu á heimasíðu bæjarins. Húsið, sem stendur við Hafnarstræti 11, var byggt árið 1795 og er elsta hús bæjarins.

Húsið var reist sem íbúðarhús en hefur á undanförnum árum m.a. gegnt hlutverki veitingastaðar, skrifstofuhúsnæðis, sýningarrýmis og æfingaraðstöðu fyrir kammerkór. Stærð hússins er 134 m2 og við það stendur 18 m2 bakhús. Húsið er friðað og fyrirhuguð starfsemi þarf að taka mið af því. Framleiga hússins er óheimil.

Hér eru upplýsingar um útleiguna. Nálgast má teikningar á kortasjá Akureyrarbæjar.

Áhugasamir skili inn hugmyndum um notkun á húsinu og leigufjárhæð í síðasta lagi fimmtudaginn 20. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar veitir Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður atvinnu- og menningarmála, í netfanginu: thorgnyr@akureyri.is

COMMENTS