Þórhallur Jónsson, vara-bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokks fyrir bæjarstjórnarkosningar í maí næstkomandi. Hér fyrir neðan er framboðsræða sem hann flutti í fyrrakvöld:
Ég býð mig fram til að leiða Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri af því ég trúi á Akureyri. Ég trúi á fólkið hér, kraftinn, framtíðina og að við getum gert enn betur.
Fyrir hvað stend ég?
Ég stend fyrir öflugu atvinnulífi. Við verðum að móta skýra atvinnustefnu og raunhæfa aðgerðaáætlun. Hraða uppbyggingu í bænum, sýna framsýni í skipulagsmálum og fjölga atvinnulóðum. Akureyri þarf að vera tilbúin fyrir vöxt. Öflugur millilandaflugvöllur og millilandaflug allt árið er lykilatriði fyrir atvinnulíf, ferðaþjónustu og framtíðarstöðu bæjarins.
Ég stend fyrir sterku mennta og uppeldiskerfi. Við eigum góða leikskóla en þeir verða að mæta þörfum foreldra og atvinnulífsins og þess vegna vil ég að börn verði tekin inn tvisvar á ári. Ég vil öflugri grunnskóla með mælanlegum árangri og hollum máltíðum. Ég vil fjölbreytt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni og að list- og tónlistarnám sé raunverulegur valkostur fyrir öll börn. Við eigum líka að standa vörð um Akureyri sem öflugan háskólabæ.
Ég stend fyrir bæ sem styður við heilsu fólks. Góðar almenningssamgöngur, öflugt stígakerfi fyrir hjólandi, gangandi og akandi og aðgengileg útivistarsvæði. Gerum Akureyri að lýðheilsubæ þar sem auðvelt er að lifa heilbrigðu og virku lífi.
Ég stend fyrir góða þjónustu við eldri borgara. Fjölbreytt þjónusta, góð félagsaðstaða og að við gerum ráð fyrir lífsgæðakjarna í næsta skipulagi.Í velferðarmálum stöndum við fremst bæja og þannig á það að vera áfram. Gagnvart ríkinu þurfum við að vera ákveðin. Flýta uppbyggingu öldrunarheimila, heilsugæslu, VMA og Sjúkrahússins á Akureyri með nothæfan þyrlupall. Ég hef bent á hvar slíkur pallur gæti verið staðsettur og mun halda áfram að þrýsta á þau mál. Ég vil hlúa að ferðaþjónustu og afþreyingu, ekki síst Hlíðarfjalli en þar eigum við ferðamannasegul sem er ómetanlegur fyrir Akureyri. Fjölbreytt gisting, öflugir veitingastaðir og fjölbreytt afþreyingarframboð skipta sköpum fyrir ferðaþjónustu, atvinnu og líf í bænum.
Ég vil líka horfa til framtíðarlausna eins og gróðurhúss sem nýtir glatvarma atNorth. Slík verkefni sameina nýsköpun, sjálfbærni og atvinnusköpun. Fjármál bæjarins hafa batnað á undanförnum árum undir okkar stjórn, meðal annars vegna fjölgunar íbúa og hækkandi útsvars. En við getum gert betur, eitt stórt skref í betri rekstri er að reisa nýtt Ráðhús, sem hýsir stærri hluta starfsemi bæjarins í stað þess að leigja dreift um allan bæ og það er tækifæri til að lækka álögur á íbúa og fyrirtæki. Ég var fyrst kosinn í bæjarstjórn árið 2018. Þá tókst okkur sjálfstæðismönnum að komast aftur til valda á miðju kjörtímabili. Við réttum fjárhag bæjarins af og sýndum að okkur væri treystandi til samstarfs og ábyrgðar. Ég var þá formaður skipulagsráðs og það sem við komum í gegn þar er enn í vinnslu í dag.
Á yfirstandandi kjörtímabili hef ég verið varabæjarfulltrúi, varaformaður skipulagsráðs og setið í stjórn Norðurorku. Ég hef átt frumkvæði að eða komið að fjölda verkefna, þar á meðal:
Nökkvahúsinu, nýju miðbæjarskipulagi, Hofsbót 2, Skarðshlíð, Austurbrú, Móahverfinu, Norðurtorgi, Leirustígnum, uppbyggingu KA-svæðisins, gagnaverinu á Akureyri, stúdentagörðum við Háskólann, aðstöðuhúsi GA, Tjaldstæðisreitnum og samkeppni um skipulag Akureyrarvallar. Í hafnarstjórn á sl. kjörtímabili barðist ég fyrir uppbyggingu á Dysnesi. Í stjórn Norðurorku stöðvaði ég sölu hlutabréfa í Skógarböðunum á undirverði og tryggði fyrirtækinu hundruði milljóna í söluhagnað.
Ég hef gegnt flestum trúnaðarstöðum innan flokksins, verið formaður Sjálfstæðisfélagsins, formaður fulltrúaráðs, setið í miðstjórn og tryggt flokknum húsnæði þegar við stóðum án aðstöðu.
Kæru vinir, ég býð mig fram af því ég hef reynsluna, framtíðarsýnina og kjarkinn til að taka ákvarðanir.
Ég vil halda áfram að byggja upp Akureyri af ábyrgð, metnaði og trú á bæinn okkar.


COMMENTS