Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, að hvetja fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er að finna í samfélaginu okkar. Febrúar er mánuður Lausu skrúfunnar en sá mánuður er oft á tíðum kaldur og dimmur og því verður brýnt að huga vel að eigin geðheilsu.
“Hugmyndin kviknaði þegar vinnufélagi spurði í kjölfar spjalls um veikindi mín hvort ég væri með lausa skrúfu? Og ég svaraði um hæl að lausu skrúfurnar mínar væru margar” segir Sigurður Gísli Gunnlaugsson hugmyndarsmiður Lausu Skrúfunnar.
Lausa Skrúfan er einnig fjáröflun fyrir félagasamtökin Grófin Geðrækt sem rekur opna og
gjaldfrjálsa geðrækt á Akureyri. Hægt er að kynnast starfseminni á Glerártorgi föstudaginn 13. febrúar frá 14-18 og dagana 26. (kl. 14-18) og 28. febrúar (kl. 12-17).


COMMENTS