112 dagurinn verður á morgun og á Akureyri verður svokallaður forgangsljósaakstur. 112 dagurinn er haldinn 11. febrúar ár hvert. Neyðarlínan er 30 ára í ár og er dagurinn bæði til þess að fagna því en einnig vekja athygli á sálrænu viðbragði.
Lagt verður af stað frá slökkvistöðinni á Akureyri klukkan 17:30 og ekið hring um bæinn. Aksturinn tekur góða klukkustund.
Hérna er linkur á kort af leiðinni sem ekinn verður. Hér má nálgast viðburðinn á Facebook.


COMMENTS