Ný félagsmiðstöð á Akureyri fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir

Ný félagsmiðstöð á Akureyri fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir

Ný félagsmiðstöð fyrir fólk 18 ára og eldra með fjölþættar stuðningsþarfir er að hefja starfsemi á Akureyri. Greint er frá á heimasíðu bæjarins í dag.

Þar segir að hópurinn muni hittast í félagsmiðstöðinni Sölku að Víðilundi 22 annan hvern þriðjudag klukkan 17.00 til 18.30. Starfsmaður verður á staðnum til stuðnings og hvetur þátttakendur til að ákveða sameiginlega hvað þeir vilja gera hverju sinni.

„Hægt verður að skapa notalega kaffihúsastemningu, borða saman, spila, spjalla og njóta samverunnar. Markmiðið er að byggja upp hlýlegt og notalegt samfélag þar sem fólk með fjölþættar stuðningsþarfir upplifir sig velkomið og getur átt góðar stundir saman,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

COMMENTS