Matiss Leo og Tirzo sigruðu tónlistarkeppni í Hollandi

Matiss Leo og Tirzo sigruðu tónlistarkeppni í Hollandi

Matiss Leo Meckl ásamt samnemanda sínum við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag, Hollandi Tirzo Garrigós sigruðu Grachtenfestival Conservatorium Concours (GCC) keppnina í Hollandi um síðustu helgi. Mattiss er fyrrum nemandi Tónlistarskólans á Akureyri og útskrifaðist þaðan vorið 2024.

Í umfjöllun á vef Tónlistarskólans á Akureyri segir að dómarar keppninnar hafi talið Mattiss og Tirzo skara framúr með frumlegri nálgun á slagverkssamleik.

Sunnudaginn 8 febrúar fóru fram úrslitatónleikar hinnar árlegu tónlistarnema-keppni Grachtenhátíðarinnar í Amsterdam. Í verðlaun hlutu þeir peningastyrk og tækifæri á að koma fram á Grachten-hátíðinni í sumar. Hátíðin er stærsta klassíska og jazz tónlistarhátíð Hollands.

„Tónlistarskólinn á Akureyri er gífurlega stoltur af þessum merka árangri og óskar Matiss og Tirzo innilega til hamingju,“ segir á vef Tónlistarskólans á Akureyri.

COMMENTS