Knattspyrnukonan Sandra María Jessen hefur skrifað undir nýjan samning hjá þýska fótboltaliðinu Köln. Hún er nú samningsbundin liðinu til ársins 2008.
Sandra var keypt til Köln síðasta sumar frá Þór/KA. Hún hefur heldur betur slegið í gegn á tímabilinu hingað til og verið einn besti leikmaður þýsku deildarinnar.
Sandra og Köln stríddu stuðningsmönnum liðsins í tilkynningu sinni um framlenginguna. Frammistaða Söndru á tímabilinu hefur vakið athygli liða frá Englandi og fjölmiðlar hafa fjallað um áhuga á Söndru þaðan. Í myndbandi sem Köln gaf út á samfélagsmiðlum í morgun má sjá Söndru byrja á flugbókun til Englands fyrir sig og fjölskyldu sína en hætta svo við. Myndbandið má sjá hér að neðan.
„Ég er hér með svalasta liðinu, besta starfsliðinu og spila fyrir frábæra stuðningsmenn. FC Köln er eins og stór fjölskylda og ég fékk ótrúlegan stuðning frá fyrsta degi. Það gefur mér mjög góða tilfinningu og tækifæri til að skila mínu og gefa til baka. Ég hef allt sem ég þarf hér. Ég gæti ekki verið ánægðari með ákvörðunina um að vera áfram hjá FC. Ég er orðin ástfangin af Köln,“ sagði Sandra við undirskriftina.


COMMENTS