Fjöldi sérnámslækna í heimilislækningum vaxið hratt á HSN

Fjöldi sérnámslækna í heimilislækningum vaxið hratt á HSN

HSN á Akureyri hefur á örfáum árum orðið sífellt vinsælli valkostur fyrir unga lækna sem vilja sérhæfa sig í heimilislækningum. Fjöldi sérnámslækna í heimilislækningum hefur vaxið hratt, eða úr fjórum í lok árs 2020 yfir í sautján stöður í heild hjá HSN, flestar þeirra setnar á Akureyri en 3 stöður á starfsstöðvum HSN utan Akureyrar, á Sauðárkróki, Siglufirði og Húsavík.

Í umfjöllun á vef HSN segir að undanfarin ár hafi tekist nokkuð vel til við að laða heilbrigðisstarfsfólk norður yfir heiðar, ekki síst læknanema og lækna á sérnámsgrunnsári sem síðar hafa ákveðið að sérmennta sig í heimilislækningum.

Guðrún Dóra Clarke, framkvæmdastjóri lækninga hjá HSN, hefur verið í forsvari fyrir kynningu á starfsemi HSN fyrir læknanemum hérlendis og erlendis, ásamt sérnámslæknum og öðrum læknum hjá HSN sem hafa lagt hönd á plóginn við að kynna HSN sem vænlegan möguleika. Hún segir að mikið sé lagt upp úr því að læknanemar upplifi sig velkomna og sem hluti af hópi.

„Við höfum byggt upp sterkt faglegt umhverfi og erum í sífelldri þróun og endurskoðun og að reyna að finna leiðir til að bæta verklag og innleiða tækninýjungar. Þetta hefur skilað því að læknanemar tengjast svæðinu betur, geta hugsað sér að vera hér áfram og velja jafnvel heimilislækningar sem sitt sérsvið. Nýja húsnæðið okkar í Sunnuhlíð er líka frábært dæmi um það hversu góðar aðstæður við getum boðið. Þetta getur haft jákvæð áhrif víðar fyrir okkur, læknar kynnast starfseminni í heild sinni og bera vonandi gott orð af því að vinna út á landi, sama hvar það gæti verið.“

Frá námi erlendis til starfa fyrir norðan

Meðal þeirra sem hafa sest að á Akureyri eru sérnámslæknarnir Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir og Kristín Erla Kristjánsdóttir, auk Melkorka Diljá Reynisdóttir sem hyggst hefja sérnám á vormánuðum.

Ólöf, sem er Reykvíkingur, flutti norður árið 2024 ásamt eiginmanni sínum, Birkir Örn Sveinsson, sérnámslækni í bæklunarlækningum. Upphaflega stóð ekki til að flytjast út á land en Ólöf segir við heimasíðu HSN að það hafi reynst ein sú besta ákvörðun sem hjónin hafa tekið.

„Við sjáum alls ekki eftir því að hafa flutt hingað og við höfum þegar keypt okkur húsnæði. Þetta er útivistarparadís, hér er frábært að vera með börn, stutt í allt, öll nauðsynleg þjónusta og við getum farið nánast allt gangandi eða hjólandi, eins og við vorum vön úti. Það er gott jafnvægi á milli starfs og einkalífs. Það eru hrein lífsgæði,“ segir Ólöf en nánar er rætt við hana á vef HSN hér.

COMMENTS