Í skýrslu um niðurstöður sorphirðu Akureyrarbæjar fyrir árið 2025 kemur fram að endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs var 58,1%. Fjallað er um niðurstöðurnar á vef Akureyrarbæjar í dag:
„Í umhverfis- og loftlagsstefnu sveitarfélagsins, sem samþykkt var árið 2022, var sett það markmið að endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs yrði 60% árið 2025. Ljóst er því að lítið vantar upp á að markmiðinu verði náð. Samkvæmt Evróputilskipun er markmiðið 55% endurvinnsluhlutfall, sem bæjarbúar hafa þegar náð — og gott betur.
Á myndinni neðst í greininni má sjá þróunina undanfarin ár og að sveitarfélagið er á réttri leið. Á grafinu bætist við nýr flokkur, textíll, en árið 2025 var fyrsta árið sem Akureyrarbær ber ábyrgð á textílsöfnun. Á árinu söfnuðust 166,6 tonn af textíl. Akureyrarbær er þar í samstarfi við þrjú önnur sveitarfélög á svæðinu. Kostnaður bæjarins vegna textílsöfnunar árið 2025 nam 13,3 milljónum króna.
Rauði krossinn við Eyjafjörð tekur við öllum textíl og sér um flokkun. Sá hluti sem ekki telst söluhæfur fer í sérstakan gám til frekari flokkunar fyrir sunnan. Að því loknu er efnið sent til meginlands Evrópu þar sem það er flokkað enn frekar. Erfitt hefur reynst að finna móttökuaðila þar sem mikið magn hefur safnast upp og gæði efnisins eru oft lítil. Því er í mörgum tilvikum lítið annað í boði en að nýta textílinn til orkuvinnslu með brennslu.“



COMMENTS