Tímabundinn forgangur fyrir börn heilbrigðisstarfsfólks í leikskólum Akureyrarbæjar

Tímabundinn forgangur fyrir börn heilbrigðisstarfsfólks í leikskólum Akureyrarbæjar

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í vikunni viðauka um tímabundinn forgang að skólavist í leikskólum bæjarins. Ákvörðunin er tekin vegna bráðrar vöntunar á sérhæfðu starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.

Þar segir að forgangurinn muni gildia frá 1. janúar 2026 til og með 31. júlí 2027 og nái til barna lækna og hjúkrunarfræðinga, að fenginni staðfestingu frá sjúkrahúsinu.

„Forgangurinn felur í sér að barn færist ofar á biðlista og fái boð um leikskólavist þegar pláss losnar. Skilyrði fyrir samþykktri forgangsbeiðni er að foreldri eða forráðamaður leggi fram staðfestingu á skuldbindingu um að starfa hjá viðkomandi stofnun í að minnsta kosti 12 mánuði frá upphafi leikskóladvalar,“ segir á vef bæjarins.

Fram kemur að börn með stuðningsþarfir eða eða sérstakra félagslega aðstæðna hafi áfram forgang fram yfir þennan tímabundna forgang.

Allar forgangsbeiðnir skulu berast skriflega og studdar gögnum á netfangið fraedslusv@akureyri.is. Leikskólateymi fræðslu- og lýðheilsusviðs metur innsendar umsóknir.

COMMENTS