Brautskráningu 93 kandídata fagnað í Háskólanum á Akureyri

Brautskráningu 93 kandídata fagnað í Háskólanum á Akureyri

Brautskráningu kandídata frá Háskólanum á Akureyri var fagnað í fallegu vetrarverði á Akureyri síðastliðinn laugardag, 14. febrúar. Alls brautskráðust 93 kandídatar af tveimur fræðasviðum í október og febrúar.

Af þeim brautskráðust 18 frá Háskólasetri Vestfjarða í október. Þá lauk einn kandídat BS prófi í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík sem í boði er sem staðnám við Háskólann á Akureyri vegna samstarfs háskólanna tveggja.

Athöfnin hófst samkvæmt venju á ávarpi rektors. Áslaug Ásgeirsdóttir ávarpaði kandídata og gesti þar sem hún lagði áherslu á að brautskráning væri afrakstur mikillar vinnu þar sem kandídatar hefðu eflt gagnrýna hugsun, sjálfstæði og fagmennsku samhliða því að takast á við áskoranir í lífi og námi.

Ítarlega umfjöllun um hátíðina má nálgast á vef Háskólans á Akureyri með því að smella hér.

Ljósmyndarinn Daníel Starrason fangaði gleðina á hátíðinni og kandídatar geta nú nálgast myndir hér.

COMMENTS