Bæjarráð samþykkir samkomulag um uppbyggingu á félagssvæði Þórs 

Bæjarráð samþykkir samkomulag um uppbyggingu á félagssvæði Þórs 

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun samkomulag um undirbúning og hönnun nýrrar íþróttamiðstöðvar á félagssvæði Þórs við Skarðshlíð á Akureyri og hefur falið bæjarstjóra að undirrita samkomulagið. Samkomulagið felur í sér að bærinn setji af stað vinnu við frumhönnun og staðarval, en að lokinni þeirri vinnu verði gerður sérstakur samningur um framkvæmd, kostnað og nánari útfærslu verkefnisins.

Markmið samkomulagsins er að bæta aðstöðu fyrir íþróttastarf í bænum, en í dag geta um 45 prósent iðkenda Þórs á aldrinum 5 til 19 ára ekki sótt æfingar á heimavelli félagsins. Nýju íþróttahúsi, sem myndi rúma tvo löglega handboltavelli, er ætlað að létta á álagi á öðrum íþróttamannvirkjum bæjarins og gera kleift að færa æfingar barna fyrr á daginn. Þá er einnig horft til fjölgunar iðkenda með uppbyggingu íbúðahverfa eins og Móahverfis á upptökusvæði félagsins.

Samkvæmt drögum verður í miðstöðinni fullbúinn keppnissalur með áhorfendaaðstöðu fyrir efstu deildir í körfubolta og handbolta, auk æfingaaðstöðu, lyftingasals, félagsrýma og skrifstofa. Gert er ráð fyrir að heildarstærð byggingarinnar verði á bilinu 4.600 til 5.300 fermetrar, þar af verði íþróttasalur um 2.300 til 2.500 fermetrar. Mannvirkið verður í eigu Akureyrarbæjar og ÍBA mun úthluta æfingatímum í salnum.

Frumkostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að verkefnið kosti á bilinu 3 til 4,5 milljarða króna á verðlagi janúar 2026. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist vorið 2028 og að miðstöðin verði tekin í notkun í ágúst 2031. Fjárveitingar eru þó háðar samþykki bæjarstjórnar hverju sinni og áskilur bærinn sér rétt til að endurskoða umfang verkefnisins breytist forsendur.

Drög að uppbyggingarsamkomulaginu má sjá hér.

COMMENTS