Háskólinn á Akureyri hlaut á dögunum styrk úr sjóðnum Arctic Research and Studies – Norðurslóðafræði sem mun fjármagna þróun alþjóðlegs verkefnis sem miðar að því að rannsaka öryggi á norðurslóðum og seiglu samfélaga. Þetta kemur fram á vef Háskólans á Akureyri.
Adam Fishwick, rannsóknarstjóri, mun stýra verkefninu í samstarfi við Tom Barry, deildarforseta Hug- og félagsvísindasviðs HA og Katharinu Glaab við University of Life Sciences í Noregi. Markmið styrksins er jafnframt að efla samstarf fræðafólks á Íslandi og í Noregi.
Nánar má lesa um verkefnið á vef Háskólans á Akureyri með því að smella hér.


COMMENTS