Á dögunum afhenti Atvinnu- og umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar Umhverfisverðlaun fyrir árið 2025 þar sem þau Stefán Árnason, Vaka Jónsdóttir og Aðalsteinn Stefnisson hlutu verðlaunin. Greint er frá á vef sveitarfélagsins.
Aðalsteinn Stefnisson tók við verðlaununum fyrir Hótel North þar sem hann hefur staðið að metnaðarfullri uppbyggingu á undanförnum árum og er enn með umtalsverðar hugmyndir í pípunum.
Hjónin Stefán Árnason og Vaka Jónsdóttir tóku á móti verðlaununum vegna sérlega fallegs og snyrtilegs umhverfis sem þau hafa skapað á fjölda árum að heimili sínu í Smáralundi.


COMMENTS