Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um húsnæðisuppbyggingu um allt land.
„Markmiðið er að styðja við fjölbreyttar húsnæðislausnir í byggðakjörnum utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt er lögð áhersla á að styðja við byggingu íbúðarhúsnæðis fyrir alla hópa samfélagsins í samræmi við þá íbúðaþörf sem húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna gera ráð fyrir,“ segir í tilkynningu.
„Samstarf milli opinberra aðila er forsenda öflugrar húsnæðisuppbyggingar um land allt,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Markmiðið með viljayfirlýsingunni er að auka aðgengi fyrstu kaupenda á landsbyggðinni að íbúðum sem falla undir hlutdeildarlán og efla leigumarkaðinn utan höfuðborgarsvæðisins. Hvort tveggja er afar mikilvægt. Einnig er mikilvægt að stuðla að uppbyggingu á svokölluðum köldum markaðssvæðum.“
Yfirlýsingin var kynnt á Akureyri nú í morgun og tekur til eftirfarandi verkefna:
Hlutdeildarlán nýtist víðar
Ríkisstjórnin hefur það að leiðarljósi að styrkja hlutdeildarlánakerfið fyrir fyrstu kaupendur. Leitað verður leiða til að mæta þörfum tekjulægri fyrstu kaupenda á landsbyggðinni með því að fjölga þar íbúðum sem uppfylla skilyrði til lánveitingar hlutdeildarlána. Leitast verður við að gera samninga við uppbyggingaraðila í samræmi við breytt fyrirkomulag hlutdeildarlána sem tók gildi þann 1. janúar síðastliðinn.
Öflugur leigumarkaður
Kannaðir verða möguleikar á að efla leigumarkaðinn á landsbyggðinni og athugað hvort og með hvaða hætti sveitarfélög geta unnið saman að rekstri eða samhæfingu leigufélaga, ýmist svæðisbundið eða á landsvísu. Þörf er á uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins víðs vegar um landið en þar er um að ræða leiguíbúðir ætlaðar þeim sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum og þar hafa biðlistar lengst undanfarin ár. Samhliða verður rýnt hvernig boðaðar breytingar ríkisstjórnarinnar á fjárhæðum stofnframlaga hafa áhrif á uppbyggingu utan höfuðborgarsvæðisins en slík framlög eru veitt til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum.


COMMENTS