Isaac Atanga í Þór

Isaac Atanga í Þór

Knattspyrnudeild Þórs hefur gert samning við knattspyrnumanninn Isaac Atanga til næstu þriggja ára. Atanga kemur til Þórs frá sænska úrvalsdeildarliðinu Kalmar FF en hann hefur einnig leikið með Cincinnati í MLS deildinni, Göztepe í Tyrklandi og norska liðinu Álasund á ferli sínum auk FC Nordsjælland þar sem ferill hans hófst. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórs.

Þar segir að Atanga sé 26 ára gamall kantmaður, fæddur og uppalinn í Gana þar sem hann kom upp í gegnum Right to Dream akademíuna. Átján ára gamall skrifaði hann undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við danska úrvalsdeildarliðið FC Nordsjælland.

Þar skoraði hann 12 mörk í 58 leikjum fyrir aðallið Nordsjælland frá 2019-2021 og hefur skorað alls 28 mörk í 160 leikjum í deild og bikar með ofangreindum félögum.

„Hann mun koma til móts við okkar menn á Marbella á Spáni um helgina en þar verður Þórsliðið við æfingar næstu daga. Við bjóðum Atanga velkominn í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar,“ segir í tilkynningu Þórsara.

COMMENTS