Embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar

Embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. júní 2026. Umsóknarfrestur er til 23. mars næstkomandi.

Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði sem og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítala. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk.

COMMENTS