Þórhallur Jónsson hefur sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri og mun tefla fram nýjum lista, Akureyrarlistanum, í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Þórhallur gaf kost á sér í oddvitasæti á lista Sjálfstæðisflokknum í ár en eftir kosningu fulltrúaráðs vann Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Þórhallur fór fram á prófkjör en ekki var orðið við því.
Hann var í þriðja sæti á lista sjálfstæðismanna árið 2018 þegar flokkurinn náði þremur mönnum inn. Árið 2022 missti flokkurinn sæti og hefur Þórhallur verið varabæjarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili.
Nánar í Morgunblaðinu.
Sjá einnig: Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri samþykktur


COMMENTS