Sólveig María kjörin formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri

Sólveig María kjörin formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri

Sólveig María Árnadóttir var kjörin formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í liðinni viku. Sólveig María var ritari stjórnar fulltrúaráðs síðastliðið starfsár. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.

Auk hennar voru Ásgeir Högnason, Kristján Blær Sigurðsson og Valdemar Karl Kristinsson kjörnir í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum.

Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri;

Gerður Ringsted, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna

Ísak Svavarsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna

Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar

Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin: Jón Þór Kristjánsson, Aðalheiður Steina Guðmundsdóttir, Jósavin Heiðmann Arason og Aníta S. Pétursdóttir.

COMMENTS