Niðurstöður úr sýnatöku Eflu verkfræðistofu vegna gruns um rakaskemmdir í húsnæði Sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesi staðfesta vöxt myglusveppa í hluta húsnæðisins.
Í tilkynningu Sjúkrahússins á Akureyri segir að aðallega sé um að ræða rými starfsfólks,krifstofur, fundaherbergi og geymslur, en einnig í rýmum sem nýtt voru í þjónustu við skjólstæðinga í stuttan tíma í einu. Starfsfólk og skjólstæðingar hafi verið upplýst um þessa stöðu.
„Í kjölfar þessarar niðurstöðu hefur verið óskað eftir frekari sýnatöku sem gert er ráð fyrir að fari fram í næstu viku. Í dag er unnið að viðbrögðum vegna stöðunnar s.s. flutningum innandyra og þrifum. Áfram verður unnið að greiningu á stöðunni sem og úrbótaáætlun. Á þessum tímapunkti er ekki gert ráð fyrir að skerða þurfi núverandi þjónustu vegna þessarar stöðu,“ segir í tilkynningu SAk.
Verkefnahópur SAk vegna húsnæðis- og rakaskemmda heldur utan um verkefnið í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk á endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild og framkvæmdastjórn.


COMMENTS