Tveir nýir röntgenlæknar til starfa á Sjúkrahúsinu á AkureyriMynd: sak.is

Tveir nýir röntgenlæknar til starfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Sérfræðingarnir Bjarki Ívarsson og Sigríður Margrét Möller hefja störf á myndgreiningadeild Sjúkrahússins á Akureyri 1. apríl næstkomandi. Þar með er myndgreiningardeild fullmönnuð. Greint er frá á vef Sjúkrahússins á Akureyri í dag.

Bjarki lauk sérnámi í myndgreiningu við háskólasjúkrahúsið í Árósum í Danmörku og hefur starfað bæði erlendis og hérlendis, meðal annars hjá Röntgen Domus. Sigríður Margrét lauk sérnámi í röntgenlækningum í Noregi og hefur starfað bæði þar og hérlendis, meðal annars hjá Röntgen Domus.

„Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins,“ segir á vef SAk.

COMMENTS