Hljómsveitin Ensími var stofnuð árið 1996 og fagnar því 30 ára starfsafmæli á árinu. Af því tilefni mun sveitin halda þrenna afmælistónleika; í Bæjarbíói 12. og 13. mars og á Græna hattinum á Akureyri 28. mars.
Ensími hefur á ferli sínum gefið út sex breiðskífur og átt lög á safnplötum, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Sveitin hefur komið víða við, bæði hérlendis og erlendis, og hefur á löngum ferli sínum fest sig í sessi sem ein áhrifamesta rokksveit landsins. Á tónleikunum verður farið yfir ferilinn og leikin vel valin lög af öllum plötum sveitarinnar. Liðsmenn Ensími hafa jafnframt verið áberandi í íslensku tónlistarlífi um árabil og starfað með fremsta tónlistarfólki landsins.
Þá er væntanlegt á streymisveitur lagið „Slow Return“, sem hingað til hefur aðeins verið aðgengilegt á útvarpsstöðvum og á tónleikum sveitarinnar.


COMMENTS