Hanboltamaðurinn Jens Bragi Bergþórsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Hann er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027-2028. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA
Þar segir að Jens, sem verður tvítugur í sumar, sé nú þegar algjör lykilmaður í liði KA sem hefur átt góðu gengi að fagna í vetur.
„Jens hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína á línunni undanfarin ár en Jens sem er uppalinn hjá KA lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið aðeins 16 ára gamall veturinn 2022-2023. Hann hefur í kjölfarið leikið 81 meistaraflokksleik fyrir KA í deild og bikar auk þess að vera fastamaður í yngrilandsliðum Íslands. Í vetur hefur Jens haldið áfram að bæta sig og hefur hann gert 73 mörk í 22 leikjum og er með skotnýtingu upp á 84% auk þess að fiska þrettán vítaköst,“ segir í tilkynningu KA.
„Frammistaða Jens í vetur sýnir skýrt að hann á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og afar jákvætt að hann sé búinn að framlengja samning sinn við uppeldisfélagið. Það verður gaman að fylgjast með honum áfram stíga skref fram á við í gula og bláa búningnum og klárt að við höldum áfram að spila á okkar efnilegu og öflugu ungu leikmönnum og byggja þar með áfram á sterkum KA anda.“


COMMENTS