Tónlistarkonan og Akureyringurinn Rakel Sigurðardóttir hefur hlotið þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026. Rakel er tilnefnd sem flytjandi ársins í flokknum Önnur tónlist og þá er lagið always tilnefnt sem lag ársins og platan a place to be sem plata ársins í sama flokki.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu 18. mars í beinni útsendingu á RÚV. Hér að neðan má sjá þau sem tilnefnd eru í sömu flokkum og Rakel en allar tilnefningar má sjá á vef Íslensku tónlistarverðlaunanna með því að smella hér.
Sjá einnig: Súperman tilnefnt sem lag ársins og XV sem plata ársins
Flytjandi ársins – Önnur tónlist
Markéta Irglová
RAKEL
Björk Guðmundsdóttir
Néfur
Árný Margrét
Lag ársins – Önnur tónlist
Always – RAKEL
A Dawning – Ólafur Arnalds og Talos
Hulin hönd – Ari Árelíus
Day Old Thoughts – Árný Margrét
Words That Move – Sævar Jóhannsson
Plata ársins – Önnur tónlist
Quiet Presence – Sævar Jóhannsson
a place to be – RAKEL
A Dawning – Ólafur Arnalds og Talos
Best á flest – Sounds of America – Magnús Trygvason Eliassen og Tómas Jónsson
Khemeia – Khemeia


COMMENTS