Snjóflóð féll á Siglufjarðarveg – Vegurinn lokaður til morgunsStrákar á Tröllaskaga. Myndin er eldri og sýnir ekki núverandi aðstæður.

Snjóflóð féll á Siglufjarðarveg – Vegurinn lokaður til morguns

Búið er að loka Siglufjarðarvegi um Almenninga vegna snjóflóðs. Þetta segir í tilkynningu frá Vegagerðinni skömmu fyrir hádegi í dag. Snjóflóðið féll skammt frá Strákagöngum Siglufjarðarmegin og var að sögn heldur stórt. Talin er hætta á frekari snjóflóðum á svæðinu.

Vegurinn verður lokaður í það minnsta þangað til á morgun. „Samkvæmt ráðleggingum frá snjóflóðaeftirlitinu var tekin ákvörðun um að loka og moka ekki. Vegurinn verður lokaður fram á morgundag,“ segir vaktstjóri hjá Vegagerðinni í samtali við Vísi.

COMMENTS