Aðalheiður Anna nýr forseti Ungs jafnaðarfólks á Akureyri

Aðalheiður Anna nýr forseti Ungs jafnaðarfólks á Akureyri

Í gær fór fram aðalfundur Sölku – Ungs jafnaðarfólks á Akureyri þar sem kosið var í nýja stjórn. Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir, nemi og forseti Feministafélags Menntaskólans á Akureyri var kjörin forseti félagsins.

Á fundinum var lögð áhersla á að Akureyri yrði meira aðlaðandi valkostur fyrir ungt fólk til að setjast að og búa sér til heimili. Þá vill Salka efla ungt fólk í stjórnmálum og veita þeim stærri vettvang til þess að tjá sig um þau mál sem þau brenna fyrir.

„Það er nauðsynlegt að Samfylkingin myndi meirihluta að kosningum loknum á Akureyri. Meirihluta sem er óhræddur við að taka pólitískar ákvarðanir og brýtur upp andvaraleysið sem hefur ríkt hjá núverandi meirihluta,“ segir Aðalheiður í stjórnmálaályktun.

„Með því að leggja áherslu á að byggja upp fjölskylduvænt samfélag þar sem er gaman að búa og spennandi fyrir ungt fólk mun okkur farnast vel. Til þess þarf forystu og framtíðarsýn sem Samfylkingin á að bjóða upp á.“

Önnur sem kosin voru í stjórn Sölku eru:
Aþena Björk Ómarsdóttir, NPA starfsmaður og crossfit þjálfari
Elvar Björn Ólafsson, nemi
Jóhannes Már Pétursson, félagsvísindanemi og alþjóðarfulltrúi SHA
Leyla Ósk Jónsdóttir, nemi og knattspyrnudómari

COMMENTS