Atli Sigurjónsson skoraði fimm mörk á móti Val – Myndband

Atli Sigurjónsson skoraði fimm mörk á móti Val – Myndband

Þórsarar unnu öruggan sigur á Val frá Reykjavík í fótboltaleik í Boganum í gær. Leiknum lauk með 5-1 sigri Þórsara þar sem Atli Sigurjónsson skoraði öll mörk liðsins.

Sigurinn tryggði Þórsurum áfram í undanúrslit Lengjubikarsins. Atli, sem kom heim í Þór í vetur, er búinn að skora sjö mörk í Lengjubikarnum í vetur.

Leikurinn var sýndur í beinni á Livey og mörkin úr leiknum má nú sjá á Instagram síðu þeirra hér að neðan.

COMMENTS