L-listinn á Akureyri mun kynna framboðslista sinn á morgun, fimmtudaginn 12. mars klukkan 12.00 á Facebook-síðu sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu L-listans í dag.
Þegar hefur verið tilkynnt að Óðinn Svan Óðinsson muni leiða listann og hann segist afar spenntur því að leiða flokkinn til kosninga. Hann segir listann samanstanda af frábæru og metnaðarfullu fólki sem hefur það að markmiði að gera Akureyri enn betri bæ til framtíðar.
„Við erum samstilltur hópur fólks sem vill vinna af krafti að því að styrkja Akureyri. Við hlökkum til að kynna framboðslistann fyrir bæjarbúum á morgun og hefja kosningabaráttuna af fullum krafti,“ segir Óðinn Svan, oddviti L-listans á Akureyri.


COMMENTS