Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum undirrita samstarfssamning um nýtt BS-námMynd: unak.is

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum undirrita samstarfssamning um nýtt BS-nám

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum hafa undirritað samstarfssamning um nýtt BS-nám í lagareldi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Háskólans á Akureyri í dag þar sem segir að undirritun samningsins marki formlega upphaf sameiginlegrar námsleiðar sem miðar að því að efla menntun og þekkingu í vaxandi atvinnugrein.

Samningurinn var undirritaður í gær af Áslaugu Ásgeirsdóttur, rektor Háskólans á Akureyri, og Hólmfríði Sveinsdóttur, rektor Háskólans á Hólum.

„Lagareldi og ræktun hafa tekið mikinn kipp á undanförnum árum, bæði hvað varðar framleiðslumagn, nýtingu tegunda og tæknilegar lausnir. Nýja BS-námið kemur til móts við skýra þörf atvinnugreinarinnar fyrir vel menntað starfsfólk með fjölbreytta þekkingu,“ segir í tilkynningu Háskólans á Akureyri.

Námið er hannað með það í huga að stúdentar geti stundað það óháð búsetu og staðlotur verða bæði á Akureyri og á Hólum. Nemendaskrá HA mun annast umsóknir og skráningar og framvinda námsins verður metin í nánu samstarfi deilda beggja háskóla. Stúdentar brautskrást frá HA en gráðunni fylgir sameiginlegur skírteinisviðauki og merki beggja háskóla. Nú er opið fyrir umsóknir í námið til 5. júní.

Ítarlegri umfjöllun um málið má finna á vef Háskólans á Akureyri með því að smella hér.

Áhugasöm geta kynnt sér BS í lagardeldi betur hér

COMMENTS