Danijel Djuric til liðs við KAMynd: KA.is

Danijel Djuric til liðs við KA

Knattspyrnumaðurinn Danijel Djuric hefur skrifað undir þriggjar ára samning við knattspyrnudeild KA á Akureyri. Danijel gengur til liðs við KA frá Króatíska liðinu Istra. Þetta kom fram í tilkynningu á vef KA í morgun.

„Knattspyrnudeild KA hefur borist gríðarlegur liðsstyrkur fyrir komandi sumar en Danijel Dejan Djuric skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við félagið. Óhætt er að fullyrða að koma Djurics hingað norður er ansi stór viðbót fyrir sumarið en hann mætir norður frá Króatíska liðinu Istra,“ segir á vef KA.

Djuric er 23 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur verið einn besti leikmaður á Íslandi undanfarin ár.

„Koma hans norður er alvöru yfirlýsing fyrir komandi sumar en KA liðið sem er að fara í sitt tíunda sumar í röð í deild þeirra bestu ætlar sér að sjálfsögðu áfram stóra hluti og er von á frekari styrkingum á næstunni. Við bjóðum Danijel Djuric hjartanlega velkominn norður og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hans í gula og bláa búningnum,“ segir á vef KA þar sem má lesa meira um Danijel og feril hans.

COMMENTS