„Besta sýning sem LMA hefur nokkurn tímann sett upp“

„Besta sýning sem LMA hefur nokkurn tímann sett upp“

LMA- Leikfélag Menntaskólans á Akureyri, frumsýndi í gær leiksýninguna Ljóska í gegn í Hofi. Árni og Hreiðar frá Gonzo.creation, kíktu á lokaæfingu LMA fyrir frumsýninguna og tóku púlsinn á hópnum. Afraksturinn má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Hátt í 120 nemendur koma að uppsetningunni hvort sem það er með leik, dansi, tónlist, markaðssetningu, búningahönnun, leikmyndahönnun, hárgreiðslu, förðun, tæknikeyrslu eða öðrum baksviðsstörfum undir styrkri hönd leikstjóranna Benóný Arnórssonar og Birtu Sólar Guðbrandsdóttur.

COMMENTS