Í dag, sunnudaginn 15. mars, var framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri til sveitarstjórnar samþykktur á félagsfundi.
„Listinn er skipaður mjög öflugu fólki sem er tilbúið til að vinna að hugsjónum okkar og gera bæinn betri,“ segir Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir sem leiðir listann en Jana hefur setið í bæjarstjórn Akureyrar í fjögur ár fyrir hönd VG. Jana segist mjög spennt fyrir kosningunum sem framundan eru og afar ánægð með að vinstra fólk í sveitarfélaginu sameinist undir merki VG.
Fólkið á listanum er góð blanda af reynsluboltum og fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum og verður mikill fengur fyrir sveitarfélagið okkar að fá svo öflugt hugsjónafólk til starfa í bæjarstjórn og nefndarstarfi.
Listinn er sem hér segir:
- Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi
- Stefán Oddur Hrafnsson, meistaranemi í kennslufræðum
- Ásrún Ýr Gestsdóttir, athafnakona
- Sigtryggur Ellertsson, vistvænn verslunareigandi
- Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi
- Erlendur Steinar Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur
- Sif Jóhannesar Ástudóttir, þjóðfræðingur
- Jóhannes Árnason, framhaldsskólakennari
- Harpa Guðbrandsdóttir, verkakona
- Elvar Freyr Fossdal Sigfússon, nemi og lagerstarfsmaður
- Anna Sigríður Jónsdóttir, félagsráðgjafi
- Mikael Snær Gíslason, líftækninemi
- Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir, verkefnastjóri á Amtsbókasafninu á Akureyri
- Davíð Örvar Hansson, teymisstjóri hjá Náttúruverndarstofnun
- Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur
- Bragi Guðmundsson, fyrrverandi prófessor
- Arnfríður Kjartansdóttir, sálfræðingur
- Angantýr Ómar Ásgeirsson, kennaranemi
- Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari og sundþjálfari
- Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistamaður og -kennari
- Hannes Sigurðsson, lagerstarfsmaður
- Kristín Sigfúsdóttir, f.v. framhaldsskólakennari og bæjarfulltrúi


COMMENTS