Það eru sumir, ég meðtalin, sem þurfa að gera allt upp á tíu. Skólinn, vinnan, fjármálin, heimilisþrifin og lengi mætti telja. Ég meina, ef maður ætlar að gera eitthvað, af hverju að gera það ekki almennilega? Einhverjir kalla þetta víst fullkomnunaráráttu.
Það er auðvelt að verða fórnarlamb hennar þegar ytra umhverfi ýtir undir fullkomnun með hrósum, viðurkenningum og jafnvel verðlaunum. Við leitumst við að vera fullkomin og við umbunum þeim sem ná því eða nálgast það. En ættum við kannski að hugsa okkur tvisvar um?
Það eru miklar kröfur sem fylgja fullkomnunaráráttu og þá er ekki pláss fyrir mistök. En það er erfiður staður til að vera á þar sem maðurinn er ófullkominn í eðli sínu og við gerum einfaldlega mistök. Það þýðir hins vegar ekki að okkur hafi mistekist heldur að við höfum fengið tækifæri til að læra. Við þurfum að sýna okkur meira mildi og fagna því frekar þegar okkur verður á. Þegar illa gengur er líka meira pláss fyrir framfarir. Ég var einmitt í golfi um daginn og mér gekk hörmulega. En í staðinn fyrir að brjóta mig niður ákvað ég að vera með það hugarfar að ég hefði bara betra tækifæri til að bæta mig. Þannig að ef maður hugsar út í það, þá er örugglega leiðinlegt að vera fullkominn. Það gefur manni ekki tækifæri til að þroskast, vaxa og dafna. Nemandi sem fær 10 í einkunn á ekkert ólært.
Ég er einmitt einn af þessum nemendum sem get ekki hugsað mér að klára áfanga nema enda með 10 í einkunn. Sjái ég fram á að ná því ekki, skrái ég mig frekar úr áfanganum. Það er þessi allt-eða-ekkert hugsunarháttur. En að fá 10 í einkunn í öllum fögum krefst mikillar vinnu fyrir flesta. Og það er erfitt að halda það út. Ég hef nokkrum sinnum byrjað í háskóla og já, meðaleinkuninn mín var yfir 9,5 en kláraði ég gráðuna? Nei. Ég var buguð eftir eina eða tvær annir. Done is better than perfect. Er ekki betra að klára eitthvað með því að gera það miðlungsvel í staðinn fyrir að klára eitthvað alls ekki af því að maður getur ekki gert það alveg fullkomlega? Það getur enginn verið fullkominn alltaf í öllu. Eigum við þá ekki bara að hætta að reyna það?
*Have the courage to be imperfect*


COMMENTS