Smit orðin 39 á Norðurlandi eystra

Smit orðin 39 á Norðurlandi eystra

39 smit vegna Covid-19 hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra. Það fjölgar því um tvö smit frá tölum gærdagsins, sem þá voru 37. Þetta kemur fram á covid.is þar sem nýjustu tölur vegna smita voru birtar klukkan 13.

Einstaklingum í sóttkví hefur fækkað verulega frá því í gær en nú eru aðeins 190 manns í sóttkví. Í samanburði voru 269 manns í sóttkví í gær.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

TENGDAR FRÉTTIR:

Sambíó

UMMÆLI