D´Eyncourt tók myndirnar í Lögmannshlíð í ágúst 1940

D´Eyncourt tók myndirnar í Lögmannshlíð í ágúst 1940

Walter Tennyson D´Eyncourt (1899-1994) var breskur kvikmyndatökumaður og ljósmyndari í seinni heimsstyrjöldinni. Auk þess að festa atburði styrjaldarinnar á filmu í heimalandinu, vann hann fyrir breska herinn í Frakklandi, Egyptalandi, Þýskalandi og á Íslandi á árunum 1939-1945.

Tennyson D´Eyncourt dvaldist á Íslandi um mánaðarskeið árið 1940 og tók þá mikið af myndum. Hann hafði bæði ljósmyndavél með sér hingað til lands sem og kvikmyndavél. Myndirnar sem sýna veru setuliðsins hér á landi er einhver besta heimild sem til er um stríðsárin á Íslandi og margar hverjar hafa birst á opinberum vettvangi við hin ýmsu tækifæri síðustu 80 árin.

Grenndargralið hefur upp á síðkastið fjallað um myndband og ljósmyndir sem breski herinn lét gera/taka sumarið eða haustið 1940 þar sem fjölskylda í Lögmannshlíð ofan Akureyrar kemur við sögu. Nú liggur fyrir að Walter Tennyson D´Eyncourt er maðurinn á bak við vélarnar í Lögmannshlíð og því jafnframt ljóst að myndirnar eru teknar í ágúst 1940.

Við frekari uppgröft á heimildum í tengslum við málið gróf Grenndargralið upp enn eina myndina úr myndaseríunni frá Lögmannshlíð. Á henni má, meðal annarra, sjá Torfa Guðmundsson þar sem hann heldur á Málfríði dóttur sinni og breskur setuliðsmaður gerir sig líklegan til að taka hana úr fangi hans. Torfi lést þegar Málfríður var 10 ára, árið 1949. Samkvæmt heimildum Grenndargralsins er myndin ein sinnar tegundar þar sem Torfi er með dóttur sína í fanginu og raunar sú eina sem til er af þeim feðginum saman.

Á bakhlið myndarinnar má lesa eftirfarandi texta: „Menn úr Lincoln-herdeildinni í veislu sem haldin var fyrir þá á sveitabæ á Akureyri. Tekin af kapt. Tennyson D´Eyncourt árið 1940.

Heimild: Grenndargralið

UMMÆLI

Sambíó