Aðgengisstroll á Akureyri í tilefni Evrópsku samgönguvikunnar

Aðgengisstroll á Akureyri í tilefni Evrópsku samgönguvikunnar

Evrópska samgönguvikan fer fram dagana 16.–22. september 2025. Yfirskrift vikunnar að þessu sinni er Samgöngur fyrir öll, þar sem áhersla er lögð á að skapa aðgengilegt og öruggt samfélag fyrir alla – óháð hreyfigetu. 

Aðalviðburður vikunnar verður svokallað „Aðgengisstroll“, haldið í samstarfi við Sjálfsbjörg á Akureyri og Virk efri ár, miðvikudaginn 17. september kl. 16.30. Farið verður frá Lystigarðinum að bílaplaninu við Íþróttahöllina, um 400 metra leið. Strollinu lýkur á planinu við Íþróttahöllina, þar sem boðið verður upp á grillaðar pylsur og samtal um upplifun þátttakenda. Þar verður einnig strætisvagn til sýnis með tilliti til aðgengis, auk þess sem gestum gefst tækifæri á að prófa að fara yfir minni hindranir í hjólastól, undir leiðsögn Sjálfsbjargar. Álíka stroll var haldið í Reykjavík í sumar, þar sem sex félög, CP, GIGT, MND, MS, SEM og SJÁLFSBJÖRG stóðu fyrir vitundavakningu um aðgengismál.

Aðgengisstrollið miðar að því að vekja athygli á aðgengismálum og mikilvægi þess að allir geti farið leiðar sinnar á öruggan og sjálfstæðan hátt. Búist er við að mörg sem nota hjálpartæki taki þátt – og við hvetjum einnig alla aðra til að fara leiðina með okkur. Bæjarfulltrúar munu fara leiðina í hjólastól sem Sjálfsbjörg útvegar og öðlast þannig einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í daglega reynslu fólks með skerta hreyfigetu.

Öll eru velkomin til að taka þátt og nota tækifærið til að eiga í beinu samtali við bæjarbúa um aðgengi og hindranir í nærumhverfinu. 

COMMENTS