Afreks- og hvatningarstyrkur Eyjafjarðarsveitar veittur í fyrsta sinn

Menningar- og velferðarnefnd Eyjafjarðarsveitar úthlutaði í fyrsta sinn afreks- og hvatningarstyrk sveitarfélagsins nú í nóvember. Þrjú ungmenni hlutu 100 þúsund krónur í styrk að þessu sinni.
Á vef Eyjafjarðarsveitar sgir að markmið styrksins sé að styðja ungt afreksfólk með lögheimili í Eyjafjarðarsveit til þátttöku í viðurkenndum alþjóðlegum verkefnum á sviði íþrótta og lista og mæta hluta af ferðakostnaði vegna slíkrar þátttöku.
Þau sem hlutu styrk eru:
Aníta Júlíana Benjamínsdóttir sem var valin í U-18 ára landslið Íslands í íshokkí, sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku í ársbyrjun.
Freyja Rán Sigurjónsdóttir sem var sömuleiðis valin í U-18 ára landslið Íslands í íshokkí, sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku.
Viktor Arnbro Þórhallsson sem var valinn í landslið Íslands í hestaíþróttum sem tók þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð á árinu.
Af þessu tilefni tók þetta unga afreksfólk á móti viðurkenningum úr hendi Jóns Björns Hákonarsonar sveitarstjóra.
Styrkjunum verður úthlutað einu sinni á ári og er umsóknarfrestur 1. nóvember. Nánari upplýsingar um afreks- og hvatningarstyrk má finna á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar.
Tengdar greinar
Uppfært: 17. nóvember 2026










