Á morgun, 3. desember, kemur út ábreiða Ágústs Þórs Brynjarssonar af jólalaginu Geimferðalangur sem Frostrósir gáfu fyrst út á íslensku en er byggt á jólalaginu A Spacemen Came Travelling. Lagið má finna neðst í greininni en ekki er hægt að hlusta fyrr en eftir miðnætti.
„Frostrósir gáfu Geimferðalangur út árið 2008 og er það alveg risastórt lag með þvílíkum söngdívum, stórhljómsveit og nánast held ég öllum kórum landsins, svo að ég ákvað að fara algjörlega í hina áttina og taka þetta upp bara með gítar og söng, við fórum inn í Grundarkirkju í Eyjafjarðarsveit til að fá svona þennan hátíðlega kirkju hljóðheim og þetta heppnaðist mjög vel fannst mér,“ segir Ágúst Þór.
„Geimferðalangur hefur alltaf verið uppáhalds jólalagið mitt svo það er mjög gaman að vera búinn að setja minn stíl á þetta og gefa út! Ég henti skilaboðum á eina af Frostrósunum miklu, hana Regínu Ósk og sagði að það þyrfti nú einhver af þeim drottningum að heyra þetta fyrst og hún var bara mega sátt með þetta.“
Geimferðalangur er fimmta lagið sem Ágúst gefur út á árinu. Hann segir lagið vera frábært uppgjörslag á árinu sem hann hefur átt.
„Árið hefur verið gjörsamlega bilað. Söngvakeppnin og allt sem því fylgdi, og svo fleiri skemmtileg verkefni tengt sjónvarpinu og tónlistinni. Síðustu mánuði hef ég sett fullan fókus á að semja meiri tónlist og það er mjög gaman að geta sagt frá því að næsta vor kemur út 8 til 10 laga plata sem ég mun svo fylgja eftir með tónleikaferð um Ísland,“ segir Ágúst.
„Þetta ár er ekki alveg búið samt, jólagigg hér og þar og ég fæ þann heiður að hita upp fyrir Ásgeir Trausta á Græna Hattinum 18.desember. Það verður gaman að taka Geimferðalangur fyrir fullan hatt.“
Lagið Geimferðalangur í útgáfu Ágústar:


COMMENTS