Akureyrarbær hefur gert samning við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Evolv um innleiðingu stafræns vinnuafls.Verkefnið er leitt af Sunnefu Lind Þórarinsdóttur, verkefnastjóra stafrænnar þróunar hjá Akureyrarbæ, og Rebekku Rán Figueras Eriksdóttir hjá Evolv. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.
„Markmiðið er að sjálfvirknivæða ferla sem taka mikinn tíma, þannig að starfsfólk geti sinnt öðrum mikilvægum verkefnum og veitt persónulegri þjónustu,“ segir Sunnefa Lind í samtali við heimasíðu bæjarins.
Á meðal verkefna sem eru þegar unnin með aðstoð stafræns vinnuafls eru aðstoð við vinnslu umsókna um sérstakan húsnæðisstuðning, sjálfvirk sending yfirlita yfir fasteignagjöld til fasteignasala og aðstoð við afstemmingu lánadrottna. Þá er einnig í vinnslu vinna við að setja upp ferli til að aðstoða launadeild við að yfirfara vinnuskýrslur kennara.
Sunnefa Lind segir innleiðingu stafræns vinnuafls styrkja stjórnsýslu og bæta þjónustu. „Stafræna vinnuaflið er virkt allan sólarhringinn og tryggir skilvirkari afgreiðslu og stöðuga þjónustu sem skilar sér í betri þjónustu til bæjarbúa.“


COMMENTS