Akureyrarbær og Tónræktin gera samning um tónlistarfræðslu

Akureyrarbær og Tónræktin gera samning um tónlistarfræðslu

Í gær, 19. janúar 2026, undirrituðu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, og tónlistarmaðurinn Guðmundur Magni Ásgeirsson fyrir hönd Tónræktarinnar, samstarfssamning milli Akureyrarbæjar og Tónræktarinnar um styrk til tónlistarfræðslu fyrir ungt fólk.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar þar sem segir að markmið samningsins sé að efla og styðja tónlistarnám ungs fólks í bænum og bjóða upp á fjölbreyttari námsleiðir, sem eykur aðgengi að skapandi námi.

Akureyrarbær mun leggja um sjö milljónir króna árlega til reksturs og starfsemi Tónræktarinnar á samningstímanum. Samningurinn tekur gildi 1. janúar 2026 og gildir til 31. desember 2028.

COMMENTS